Meistaramánuður 2011
Þrettándinn

Ég veit ekki hvað skal segja, ég hef ekki bloggað í rúma viku og ég skammast mín. Allt gengur samt mjög vel. Það er búið að vera nóg að gera í skólanum og góðar einkunnir streyma inná innranetið mitt, hef ekki séð svona góðar einkunnir síðan á samrænduprófunum í 10unda bekk.

Ég viðurkenni að ég verið örlítið slippin á markmiðunum. Ég hef ekki alveg staðið við 50 armbeygjur og 50 magaæfingar á kvöldin því ég er með endalausar harðsperrur af bootcampinu og vil gjarnan vera góð við mig á milli æfinga. Ég þarf þó að fara spýta í lófana ef ég ætla að ná þessari einu upphífu í lok mánaðar! Ég fékk mér líka kaffi á sunnudaginn en það var besti kaffibolli sem ég hef drukkið og ég sé ekkert eftir honum.
Mataræðið verður sífellt auðveldara og ég finn hvað ég er miklu orkumeiri heldur en áður. Ég er líka að borða mun sjaldnar og minni skammta. Ég er farin að geta umgengist öll svínin í hádeginu með pizzu, kók og kleinuhringi. Eitt sem ég hef þó ekki geta komið úr hausnum á mér bragðarefur. Vesturbæjarís-þristur-jarðaber-bounty mmmmmmm. Það er eitthvað með stelpur og bragðarefi, ég hef verið svo nálægt því að fara í laumuferð í vesturbæinn en hef ekki lagst svo látt…. enn.

Núna um helgina erum við fjölskyldan að fara á Stykkishólm á míní ættarmót. Amma og afi, systur pabba og fjölskyldur. Ég hafði miklar áhyggjur af að allt yrði fljótandi í sjónvarpsköku, ömmu vöfflum, rjóma, kakó o.s.fr. en það virðist sem allir séu að taka þátt í meistaranum, stórir sem smáir. Mamma og pabbi fengu því það hlutverk að sjá um matinn og nú eru þau búin að verkaskipta því milli allra og ég sé um eftirrétti með Hrafnhildi og Andreu, Atli og Jökull ætla að sjá um lambið, það verður heilsu brunch, hafragrautur á morgnanna og ég veit ekki hvað og hvað. Síðan verða göngutúrir um bæinn og crossfit fyrir þá sem nenna. Þetta stefnir í heljarinnar helgi og ég er bara spennt.  

Afþví ég er búin að vera slöpp í að blogga ætla ég að henda inn einhverjum myndum af mat sem ég hef tekið síðustu daga. 

Fljótlegur og góður hádegismatur. Blandað rótargrænmeti,baunaspírur og purusteik. Það fæst tilbúið gott stykki af puru í nóatúni á aðeins 1000 kr.Fljótlegur og góður hádegismatur. Blandað rótargrænmeti, baunaspírur og purusteik. Það fæst tilbúið gott stykki af ljúffengri puru á aðeins 1000 kall í nóatúni.


Uppáhalds snarlið mitt, epli með jarðhnetusmjöri. Þarna er líka grænn safi úr epli, engifer, sellerí og gúrku.


Paleo brownies. Þetta er ágætis eftirréttur, betri daginn eftir þegar hann er búinn að standa í kæinum. Ég bætti svo smá hindberjasósu til að fá smá sætt. 


Ég fékk mér þetta í kvöldmat í gær, það var varla neitt til svo ég henti því sem ég fann í blender með ótrúlegri útkomu. Appelsína, 2 avócado, jarðhnetusmjör, frosin hindber, frosin bláber, smá hrísmjólk, hörfræ. Síðan setti ég fullt af bláberjum og kókos ofan á og þetta var þrusu gott. Eiginlega meiri desert heldur en kvöldmatur.  

 Endum þetta síðan á skemmtilegri mynd í kjötsúpu hjá afa. 

Sæl að sinni! 

Sjósund og skúffukaka

Ég hef ekki alveg staðið mig í blogginu síðustu daga en ég get sagt ykkur að allt gengur vel. Boot campið í fullu fjöri og smá prófatörn loksins lokið. Dagurinn í dag hefur verið góður, enda föstudagur. Ég byrjaði daginn á því að ganga nokkuð vel í prófi og var búin snemma í skólanum. Skipti um dekk á bílnum og tók smá hring í góða hirðinum í því endalausa missioni að finna sófa í herbergið mitt. Það tókst því miður ekki en ég lét það ekki draga úr góða skapinu. 
Til þess að geta sagst hafa fylgt markmiðum mínum 100% þessa viku átti ég enn eftir að fara í sund. Ég hef aldrei verið mikil sundkona og líður best í heitapottinum eða í sánunni. Þess vegna ákvað ég að skora á sjálfa mig og skellt mér í sjósund. Ég dró mömmu mína (bókstaflega) með mér niður í nauthólsvíkina en við höfum hvorugar farið eftir að kólna tók í veðri. Ég synti ekki langt, en ég synti þó. Sælutilfinningin er svakaleg og er þetta eitthvað sem allir verða að prófa, ungir sem gamlir. 


Já, þarna er ég!

Ég borðaði himneskar kjötbollur í boði pabba í kvöldmat og með kvöldteinu var það  skúffukaka Mörtu Maríu sem er það besta sem ég hef borðað allan meistaramánuðinn. Það er algjör óþarfi að setja 1/2 bolla af hunangi, ég setti aðeins eina matskeið og kókosolíu. Ég ætla að gera nýjan skammt á morgun og leika mér aðeins meira með hráefnin. Ég tók einhverjar myndir af þessu en þær komu mjög illa út, það illa að þetta líktist helst sviði. Ég ætla ekki að eyðileggja þessa uppskrift fyrir ykkur með myndum og geri betri tilraun á morgun.

Nú ætla ég að slútta þessu föstudagskvöldi með smá xfactor. Boot camp í fyrramálið svo það er eins gott að fara snemma að sofa. Fulla ferð allir!

Dagur 4

Þetta er búið að vera góður dagur. Ég vaknaði klukkan hálf 7 sem er persónulegt met. Ég fékk mér hafragraut, te, lýsi og engiferskot meðan ég las Fréttablaðið. Dundaði mér síðan við að smyrja nesti sem heppnaðist ágætlega. Tók með mér grænmetisstöngla með hummusinum góða og útbjó mér salat með papriku, pekan hnetum, madarínu, baunaspírum og avocado. Ég gerði dressinguna úr ferskri appelsínu, olívu olíu, s&p, pekan hnetum og henti því í blender. Þetta heppnaðist svona ágætlega. Hádegið í skólanum var að vísu erfitt og mig langaði í ekkert annað en beyglu og kókómjólk. Ég reyndi að halda mig inní stofu í hléum til að kvelja mig ekki í kringum þá sem koma með pizzu og þess háttar frá djöflinum.  

Ég fór síðan á mína fyrstu bootcamp æfingu og það var helvíti fínt. Hlaup, æfingar og allskonar skemmtilegt sem nánast drap mig. Heima beið mín dýrindis kjúklingur með hráskinku og rófusalati, nákvæmlega það sem ég þurfti. 

Eitt sem mér hefur tekist til að finna lausn á er súkkulaðiþörfin! Já þið heyrðuð rétt. Eitt af markmiðum mínum var að prófa mig meira áfram í eldhúsinu svo ég hófst handa við að búa til paleo-súkkulaði-kúlur. Ég ætla samt ekki að fullyrða að þetta sé 100% paleo hjá mér en allavega mjög nálægt því. 

  • 1/4 bolli kakó (ég notaði organic black and green kakó)
  • 1/4 bolli bráðin kókosolía
  • 1 bolli pekan hnetur (hakkaðar í blender)
  • 3- 4 msk hnetusmjörið hennar Sollu (sem er 99,5% jarðhnetur og 0.5% salt og algjör snilld. Ég og mamma smyrjum eplasneiðar með þessu)
  • 1 msk Stevia (náttúrlegur sweetner, hún er mjög sæt en gefur líka frá sér smá beiskt bragð, Stevia) má sleppa. 

Öllu er hrært saman og látið standa í kæli í smá stund. Kúlur mótaðar og velt uppúr kakó. 
Ég hugsa ég leyfi mér eina svona á hverju kvöldi svo gott er þetta. 

Smá varðandi markmiðin mín sem ég ætla að lagfæra. Ég ætla að taka út möndlu/hrís/soyja mjólk. Ég hef verið að lesa mér betur til um þetta, skoða innihaldið og mér finnst þetta ekkert sniðugt lengur. Það breytir mig litlu þó ég taki það út.
Fyrst eitt er bætt þá ætla ég að gefa eftir í öðru og það er tölvutíminn. Ég setti mér það óraunsæja markmið að loka öllum tölvubúnaði klukkan 10, við skulum hafa það 11. hehe. 

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra því nú ætla ég að lesa í bókinni minni og finna einhverja góða uppskrift af fisk til að elda á morgun. Sæl að sinni! 

Ps. Ég skil ekki afhverju myndirnar verða alltaf svona teygðar hjá mér, ef einhver kann að breyta stærð myndanna þá má hann endilega hjálpa mér. 

Dagur 2

Í morgun mundi ég eftir lýsinu. Vaknaði snemma og fékk indælan apple-cinnamon hafragraut og grænan smoothie (epli, spínat, mangó, ananas) í boði Atla. 
Ég skil hreinlega ekki afhverju ég hef eytt einhverjum sunnudögum í að vera löt, þreytt og kannski smá þunn. Allt er hægt á sunnudögum. Mér hefur tekist að fara út að hlaupa, gera smá æfingar, baka brauð handa fjölskyldunni (sem ég fékk því miður ekki að njóta), bjó til múslí, hummus, safa og las endalaust fyrir menningarfræði próf. Einnig gróf ég upp bókarsafnskortið mitt sem ég notaði á kringlubókarsafninu. Það er gaman að vera meistari. 
Hérna er hádegismaturinn sem Jökull útbjó, skemmtilegt hversu saddur maður verður af rótargrænmeti. Þarna má líka sjá einn uppáhalds safann minn úr eplum, ananas og myntu, dííísætur. 

Ég verð samt að fara aðeins inná hversu góður þessi hummus var. Ég grillaði eggaldin og lauk, notaði síðan smá afganga af hádegisgrænmetinu, tahini, sítrónu, s&p, hvítlauk og boom.  
 
Ég er komin með framtíðarmarkmið, að nýta sunnudaga. Sæl að sinni!

Dagur 1

Okay, þá er  fyrsti dagurinn búinn og hann gekk bara svona ágætlega. Ég hef sífellt þurft að minna mig á markmiðin mín og hef verið aðeins slippin. Eins og núna er ég í tölvunni sem ég átti að loka klukkan 10 drekkandi líterinn af vatni sem ég á eftir að drekka og nýbúin að taka lýsið sem ég gleymdi í morgun. Þetta verður vonandi að aðeins skipulagaðri rútínu með tímanum. Andskotinn sem ég er líka búin í höndunum eftir þessar 50 armbeygjur. 

Ég borðaði 2 góðar máltíðir í dag sem er heldur lítið, þær verða fleiri á morgun. 

Í morgun/hádegismat fékk ég mér spælt egg, sætar kartöfubita steikt  uppúr smá rósmarín og hunangsmelónu. Með þessu drakk ég smoothie sem samstóð af eplum, sellerí, gúrku og spínati og heppnaðist einstaklega vel. Þetta í litlu krukkunni er engiferskot með smá eplasneið. Mig vantar ennþá eitthvað fyrir saltið inní þessa blöndu. 

Morgunmatur

Í kvöldmat átum við fjölskyldan lambakjöt með bökuðu grænmeti. Í stað brúnnar sósu gerði ég hindberjasósu úr frosnum hindberjum, vatni, salti og örlitlu hunangi, rosa gott. 

Kvöldmatur

Í eftirrétt var það hráfæðis-kakó-kaka. í botninum er kókosmjöl, möndlur og ein matskeið agave til að binda þetta saman. Fyllingin er síðan kókosolía, kakó og svokallað stevia powder sem er algjört thunder. Það er möluð planta sem er alveg einstaklega sæt og meinholl. Gott að nota hana til að sæta t.d. hafragrautinn, abmjólkina eða eins og í mínu tilfelli hrákökuna. 

 

Ég vil óska öllum gleðilegrar hátíðar og vona að allir séu að standa við sitt. Sæl að sinni!

Markmiðin mín

Jáaaa ég er vægast sagt spennt fyrir næstu 30 dögum. Ég er með mjög háleit markmið að mínu mati og eru öll pepp mjög vel þegin. Ég ákvað að taka mér smá pásu á crossfitinu og skráði mig í bootcamp ásamt nokkrum vinkonum. Mataræðið verður eitthvað ströggl en sem betur fer á ég fjölskyldu og kærasta sem eru all-in á meistarann. Ég mun deila með ykkur myndum og uppskriftum því ég veit hversu spennt þið eruð að fylgjast með mér. Gangi ykkur öllum vel. 

Hreyfing:

  • Bootcamp 3x í viku
  • Sund 1x í viku 
  • Hlaupa á sunnudögum 
  • 50 armbeygjur og 50 magaæfingar á hverju kvöldi
  • Geta gert eina upphífu í lok mánaðar!

Mataræði:

  • Enginn sykur 
  • Ekkert hveiti
  • Engar mjólkurvörur
  • Ekkert áfengi
  • Ekkert kaffi
  • Lýsi á hverjum morgni
  • Ég er mjög dugleg að gera mér safa í safrapressunni og ætla að gera minna af ávaxtasöfum og meiri basíska græna safa.
  • 1-2 engiferskot á dag
  • Drekka 2l af vatni á dag 

Þetta verður c.a 75% paleo 

+ hrísgjón (sushi)
+ kjúklingabaunir
+ hafrar 
+ soyja/möndlu/rís mjólk
+ heimalagað múslí 
+ ég ætla að sjá til hversu lengi ég kemst af án AB mjólk

Annað

  • Gera vikulega lærdómsáætlun og fylgja henni 
  • Fara að sofa á milli 11-12
  • Vakna klukkan 7 á virkum dögum 
  • Loka öllum tölvubúnaði klukkan 10 
  • Klára bókina „Ég man þig”
  • Lesa íslensku þýðinguna á „How we get fat”
  • Hlusta á öll lögin á http://soundcloud.com/rexb
  • Elda einu sinni í viku á heimilinu
  • Prófa mig meira áfram í hráfæðisuppskriftum 
  • Veggfóðra herbergið mitt 
  • Síðast en ekki síðst - Vera jákvæð!